ON
← Back to feed
ISSports2 days ago

Mexico tops the 32-team rankings after horrific failure

Mexico advanced to the 32-team stage of the World Cup after defeating South Korea 1-0 in Guadalajara. The only goal of the match was scored by Luis Romo early in the second half following a costly mistake by South Korean goalkeeper Kim Seung-gyu. Mexico has now won their first two matches at the tournament, securing the top spot in Group A and guaranteeing progression to the knockout stages. This marks the first time since 2002 that Mexico has reached the round of 16. South Korea still has a chance to advance after beating Turkey in their opening match and will face South Africa in the final组.

Gestgjafar Mexíkó komust í nótt áfram í 32-liða úrslit HM í fótbolta, fyrstir þjóða, með því að vinna Suður-Kóreu 1-0 í Guadalajara.

Eina mark leiksins skoraði Luis Romo snemma í seinni hálfleik, eftir skelfileg mistök Suður-Kóreumanna. Fyrirgjöf barst inn í teiginn og eftir háan skalla ætlaði Kim Seung-gyu, markvörður Suður-Kóreu, að grípa boltann en hann lenti svo á samherja sínum og missti boltann beint fyrir fætur Romo sem skoraði nokkuð auðveldlega í autt markið.

Luis Romo nýtti sér það að markvörður Suður-Kóreu missti boltann, og skoraði í autt markið. Getty/David Ramos

Mexíkó hefur því unnið fyrstu tvo leiki sína á mótinu, eftir 2-0 sigur gegn Suður-Afríku í fyrsta leik, og hefur þar með þegar tryggt sér efsta sætið í A-riðli, sama hvernig fer gegn Tékklandi í lokaumferð riðlakeppninnar. Þetta er í fyrsta sinn frá árinu 2002 sem Mexíkó vinnur sinn riðil á HM.

Suður-Kórea á enn góða möguleika á að komast einnig áfram í 32-liða úrslitin eftir að hafa unnið Tékkland í fyrsta leik. Liðið mætir Suður-Afríku í lokaumferðinni en Suður-Afríka og Tékkland eru með eitt stig hvort eftir jafntefli sitt.

Suður-Kórea fékk sitt besta færi til að skora í nótt þegar örfáar mínútur voru eftir en það var líka algjört dauðafæri. Cho Gue-sung fékk þá frían skalla af fjærstöng en Raul Rangel tókst að verja skallann og einnig skot Yang Hyun-jun sem náði frákastinu.

Son Heung-min, fyrirliði Suður-Kóreu, hafði áður verið nálægt því að skora þegar hann vippaði yfir Rangel en Edson Alvarez bjargaði á marklínu.

Read the full article at Vísir

1 reports

VísirIndependentCenter2 days ago
Mexico tops the 32-team rankings after horrific failure

Mexico advanced to the 32-team stage of the World Cup after defeating South Korea 1-0 in Guadalajara. The only goal of the match was scored by Luis Romo early in the second half following a costly mistake by South Korean goalkeeper Kim Seung-gyu. Mexico has now won their first two matches at the tournament, securing the top spot in Group A and guaranteeing progression to the knockout stages. This marks the first time since 2002 that Mexico has reached the round of 16. South Korea still has a chance to advance after beating Turkey in their opening match and will face South Africa in the final组.

Bias read (Center): The article reports on a sports event with no political implications. It provides factual details about the match outcome, player actions, and tournament standings without any biased language or framing.