Gjaldtaka af skipum sem sigla um Hormússund hefst eftir að tveggja mánaða viðræðum Írana og Bandaríkjamanna lýkur, að sögn íranskra stjórnvalda. Samkomulag sem skrifað var undir í vikunni kveður á um að sundið verði opnað og án gjaldheimtu.
Mohammad Bagher Ghalibaf, aðalsamningamaður Írans, segir að gjaldið verði lagt á til þess að mæta kostnaði Írana við að hafa umsjón með umferð um Hormússund.
Þá segjast Íranir frábiðja sér að Evrópuríki sendi flota til þess að fylgja flutningaskipum í gegnum sundið, að því er kemur fram í frétt breska blaðsins The Guardian.
Ísraelar gætu einnig reynst þrándur í götu þess að samkomulagið haldi. Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, sagði í gær að „öryggissvæði“ sem Ísraelar hafa komið upp í sunnanverðu Líbanon verði viðhaldið eins lengi og öryggi Ísraels krefjist.
Að minnsta kosti sextán létust í árásum Ísraela á sunnanvert Líbanon sem hófust í gærkvöldi, að sögn stjórnvalda í Beirút. Ísraelar sögðu árásirnar viðbragð við endurteknum brotum Hezbollah-samtakanna, bandamönnum Írana, á vopnahléi.
Íranir telja að samkomulag þeirra við Bandaríkin feli í sér að Ísraelar þurfi að draga herlið sitt til baka frá Líbanon. Ísraelar hersetja nú um 600 ferkílómetra svæði við landamæri ríkjanna.
Ekkert verður af viðhafnarundiritun samkomulags Bandaríkjanna og Írans sem átti að fara fram í Sviss í dag. Donald Trump Bandaríkjaforseti og Masoud Pezeshkian, íranski starfsbróðir hans, skrifuðu rafrænt undir samkomulagið í vikunni.
Read the full article at Vísir →📄Source document: Mohammad Bagher Ghalibaf
1 reports
VísirIndependentCenter2 days ago The Iranians say they'll charge for Sunday cruisesIran has announced plans to impose tolls on ships passing through the Strait of Hormuz following two months of negotiations with U.S. officials, according to Iranian authorities. A agreement signed this week calls for the strait to remain open and toll-free. Mohammad Bagher Ghalibaf, Iran's deputy speaker, stated the toll would cover costs related to monitoring traffic through the strait. Iran also reportedly rejected European proposals to deploy naval forces to monitor shipping through the strait, as reported by The Guardian. Israel may face challenges to the agreement, as Prime Minister Beny
Bias read (Center): The article reports on an international agreement regarding tolls on shipping through the Strait of Hormuz without taking a stance or using biased language. It presents information from multiple sources including Iranian officials, The Guardian, and mentions Israeli actions without editorializing.
Official sources cited
- government Mohammad Bagher Ghalibaf
- press release The Guardian