ON
← Back to feed
ISCulture2 days ago

Who's gonna be the Plate of the Year?

Nóa Síríus is launching a summer campaign called 'Plata ársins,' featuring three well-known individuals who have created their own unique sugar-free chocolate bars in collaboration with the company. The participants are Árni Páls Árnason (known as Herra Hnetusmör), Sólrún Diego, and Hjörvar Hafliðason. Each participant developed their own recipe and packaging design based on their personal ideas and taste. The products are described as distinct in both content and experience.

„Eflaust hafa margir tekið eftir því að á undanförnum dögum hafa þau Hjörvar, Árni og Sólrún auglýst á miðlum sínum að væntanleg sé plata. Nú er gaman að uppljóstra því að um súkkulaðiplötu var að ræða,“ segir Rúnar Kristmannsson, markaðsstjóri Nóa Síríus.

Ljósmynd/Aðsend

Plötuverslun Nóa Síríus kynnir í dag sumarherferðina Plata ársins , þar sem þrír landsþekktir einstaklingar hafa hannað sína eigin súkkulaðiplötu í samstarfi við Nóa Síríus. Keppnin stendur á milli Árna Páls Árnasonar, betur þekkts sem Herra Hnetusmjör, Sólrúnar Diego og Hjörvars Hafliðasonar, sem öll hafa sett sitt persónulega mark á nýjar og einstakar súkkulaðiplötur. „Eflaust hafa margir tekið eftir því að á undanförnum dögum hafa þau auglýst á miðlum sínum að væntanleg sé plata. Nú er gaman að uppljóstra því að um súkkulaðiplötu var að ræða,“ segir Rúnar Kristmannsson, markaðsstjóri Nóa Síríus.

Í verkefninu unnu Árni, Sólrún og Hjörvar náið með vöruþróunarteymi Nóa Síríus að þróun sinnar plötu. Hver uppskrift var mótuð út frá þeirra eigin hugmyndum og smekk, auk þess sem þau komu að hönnun umbúða og útliti sinnar plötu frá upphafi til enda.

Allar þrjár plöturnar bera skýrt einkennisbragð höfunda sinna og eru ólíkar að innihaldi og upplifun. Plata Sólrúnar Diego er Nóa Síríus rjómasúkkulaði með lakkrísbitum, súkkulaðiperlum og saltkringlum. Plata Herra Hnetusmjörs er Nóa Síríus rjómasúkkulaði með salmíak- og nammiperlum. Plata Hjörvars Hafliðasonar er Nóa Síríus rjómasúkkulaði með karamellu- og poppkurli ásamt hrískúlum.

Vildu búa til meiri stemningu fyrir sumarið

Nú geta landsmenn smakkað plöturnar og tekið þátt í að velja sigurvegara með því að kjósa sína uppáhaldsplötu á Plataarsins.is .

„Plata ársins er sumarherferð sem sækir innblástur í ógleymanlega Pottþétt tíma, þegar sumartónlist, stemning og eftirvænting einkenndu sumarið. Við vildum færa þessa tilfinningu inn í samtímann með skemmtilegri keppni þar sem landsmenn fá að taka þátt í að velja sína uppáhalds plötu. Útkoman er herferð sem sameinar nostalgíu, tónlistarstemningu og nýjar bragðupplifanir,“ segir Rúnar.

„Plata ársins er sumarherferð sem sækir innblástur í ógleymanlega Pottþétt tíma,“ segir Rúnar Kristmannsson, markaðsstjóri Nóa Síríus.

Ljósmynd/Aðsend

„Mjög skemmtilegt verkefni“

Anna Fríða Gísladóttir, framkvæmdastjóri markaðssviðs Nóa Síríus og ábyrgðarmaður vöruþróunar, segir samstarfið hafa verið einstaklega ánægjulegt.

„Það hefur verið afar skemmtilegt að vinna með Árna, Hjörvari og Sólrúnu að þessu verkefni. Frá fyrstu hugmyndum til lokaafurðar tók þróunarferlið um eitt ár og þátttakendur komu að öllum helstu ákvörðunum varðandi bragðsamsetningar og útlit. Það má eiginlega segja að persónuleiki hvers og eins endurspeglist í lokaafurðinni.“

Nú geta landsmenn smakkað plöturnar og tekið þátt í að velja sigurvegara með því að kjósa sína uppáhaldsplötu á Plataarsins.is.

Ljósmynd/Aðsend

Kosningin um Plötu ársins stendur nú yfir á Plataarsins.is þar sem neytendur geta valið þá plötu sem þeim þykir best en sú plata sem sigrar heldur áfram í varanlegu vöruvali hjá Nóa Síríus. Plöturnar má nálgast í öllum helstu verslunum í takmörkuðu upplagi.

Read the full article at Morgunblaðið / mbl.is

1 reports

Morgunblaðið / mbl.isIndependentCenter2 days ago
Who's gonna be the Plate of the Year?

Nóa Síríus is launching a summer campaign called 'Plata ársins,' featuring three well-known individuals who have created their own unique sugar-free chocolate bars in collaboration with the company. The participants are Árni Páls Árnason (known as Herra Hnetusmör), Sólrún Diego, and Hjörvar Hafliðason. Each participant developed their own recipe and packaging design based on their personal ideas and taste. The products are described as distinct in both content and experience.

Bias read (Center): The article discusses a marketing campaign by a company involving celebrity endorsements and product development. There is no political commentary, framing, or bias evident in the text. It provides factual information about the event without taking a stance or using loaded language.