ON
← Back to feed
ISCulture5 days ago

The Netherlands confirms the marriage

Tom Holland and Zendaya have confirmed their engagement after months of speculation. The couple first publicly appeared together at a red carpet event in Madrid. Holland spoke about his relationship with Zendaya in an interview with Esquire UK, describing her as his 'person' and stating she gives him stability in the demanding world of cinema.

Hjónin Tom Holland og Zendaya á kynningarviðburði fyrir kvikmyndina Spider-Man: Brand New Day í Madríd í gær. Þau fara bæði með hlutverk í myndinni.

AFP/Thomas Coex

Breski leikarinn Tom Holland hefur staðfest að hann og Zendaya hafi gengið í hjónaband eftir margra mánaða vangaveltur.

Holland, sem er hvað þekktastur fyrir hlutverk sitt sem Spider-Man, ræddi sambandið í viðtali við Esquire UK . Þar var hann spurður út í gervigreindargerðar brúðkaupsmyndir af parinu sem fóru í dreifingu á netinu og hvort hann hefði þurft að útskýra þær fyrir fjölskyldumeðlimum sem héldu að þeir hefðu misst af stóra deginum.

„Nei, því þau voru öll þar,“ svaraði Holland og bætti við að það væri það eina sem hann ætlaði að segja um málið.

Sögusagnir um hjónaband þeirra hafa verið á kreiki frá því í febrúar þegar stílistinn Law Roach, sem hefur lengi unnið með Zendayu, lét þau orð falla að brúðkaupið hefði þegar átt sér stað. Holland og Zendaya kusu þá að tjá sig ekki um málið.

Hjónakornin komu fram saman á rauða dreglinum í fyrsta sinn í fimm ár í gær.

AFP/Thomas Coex

„Ég hef fundið mína manneskju“

Í viðtalinu fór Holland fögrum orðum um eiginkonu sína og sagði samband þeirra veita honum mikla festu í krefjandi heimi kvikmyndabransans.

„Ég hef fundið mína manneskju. Hún er besta vinkona mín og ég hef aldrei verið hamingjusamari en þegar ég er með henni,“ sagði Holland. Hann bætti við að hann hefði aldrei fundið fyrir jafn miklum stuðningi og öryggi.

Holland og Zendaya kynntust fyrst við tökur á Spider-Man: Homecoming og hafa haldið sambandi sínu að mestu utan sviðsljóssins. Þau komu þó fram saman á rauða dreglinum í fyrsta sinn í fimm ár á kynningarviðburði fyrir Spider-Man: Brand New Day í Madríd í gær.

Parið mun einnig sjást saman á hvíta tjaldinu á næstunni, bæði í nýrri Spider-Man -mynd og í The Odyssey eftir Christopher Nolan.

Daily Mail

Read the full article at Morgunblaðið / mbl.is
Source document: Esquire UK Interview with Tom Holland

1 reports

Morgunblaðið / mbl.isIndependentCenter5 days ago
The Netherlands confirms the marriage

Tom Holland and Zendaya have confirmed their engagement after months of speculation. The couple first publicly appeared together at a red carpet event in Madrid. Holland spoke about his relationship with Zendaya in an interview with Esquire UK, describing her as his 'person' and stating she gives him stability in the demanding world of cinema.

Bias read (Center): The article reports on a celebrity engagement without taking a political stance or showing bias in framing. It presents facts and direct quotes from the individuals involved without editorializing or emphasizing any particular viewpoint.

Official sources cited

Go to the primary sources (1)

The official sources this coverage is built on. Read them directly to bypass framing.