ON
← Back to feed
ISCulture3 days ago

Hip hops with the album The Heart's Algorithm

The article discusses the Icelandic music duo Hipsumhaps, formed by Fannar Inga Friðþjófsson and Jökuls Breka Þórhallsson. It highlights their early success with songs like 'Lífið sem mig langar í' and 'Best gleymdu leyndarmálin,' followed by their win at the Icelandic Music Awards in 2020. Since 2021, Fannar Inga has continued as a solo artist, releasing two albums. The article also introduces 'Algrím hjartans,' described as an exploration of everyday Icelandic life through music, where listeners are invited into a studio setting to engage with personal questions about daily life. Atli MárSte

„Við erum búin að leggja mikla vinnu í þessa plötu og hlökkum til að deila henni með ykkur. Vonandi hlustið þið með opnu hjarta,“ segir Fannar Ingi Friðþjófsson, jafnan kenndur við hljómsveitina Hipsumhaps. Breiðskífan Algrím hjartans, nýjasta plata sveitarinnar, kom út á öllum helstu streymisveitum í gær, á sjálfan þjóðhátíðardaginn 17. júní.

Frumhlustun í Gamla bíói

Útgáfunni var fagnað með glæsilegri frumhlustun fyrir fullu húsi í Gamla bíói þann 10. júní síðastliðinn.

„Á frumhlustunarkvöldinu bauð Hipsumhaps gestum upp á einstaka upplifun þar sem platan var spiluð í heild sinni á meðan Fannar Ingi deildi sögum og pælingum á bak við hvert einasta lag. Viðburðurinn var sitjandi og einkenndist af einstaklega notalegri og nákominni stemningu.

Vinna við Algrím hjartans hefur verið yfirgripsmikil og ströng, en upptökur hófust í júlí á síðasta ári og stóð lokahnykkurinn yfir frá febrúar fram í maí á þessu ári. Stór hópur afburða tónlistarfólks og tæknimanna kom að gerð plötunnar til að láta hana verða að veruleika,“ segir í fréttatilkynningu.

Sögufræg stúdíó

Upptökum og útsetningum var stýrt af Fannar Inga og Kaktusi Einarssyni, auk þess sem Kristinn Þór Óskarsson stýrði upptökum og útsetningu á öðru lagi plötunnar. Þeir spiluðu jafnframt á öll möguleg hljóðfæri.

Algrím hjartans kom út á miðnætti. Erlendur Sveinsson/Sigurður Ýmir

„Hljóðheimurinn var fangaður í sögufrægum stúdíóum; í Hljóðrita, París á Frakkastíg, Stúdíó Kisi og Sundlauginni, þar sem Sigurður Ingvar Þorvaldsson og Jóhann Rúnar Þorgeirsson sáu um hljóðtækni. Bergur Þórisson hljóðblandaði svo plötuna og Emil Thomsen sá um hljómjöfnun.

Sjónrænn heimur plötunnar var sömuleiðis vandaður þar sem Erlendur Sveinsson skapaði myndheiminn, Sigurður Ýmir Kristjánsson hannaði grafík og Hulda Halldóra Tryggvadóttir var stílisti.“

Landslið flytjenda

Listinn yfir flytjendur á plötunni telur marga öfluga tónlistarmenn. Meðal þeirra eru gítarleikararnir Björgúlfur Jes Einarsson og Snorri Helgason, en Snorri syngur einnig bakraddir ásamt Rakel Sigurðardóttur og Védísi Hervöru Árnadóttur.

Trommuleikur var í höndum Axels Haraldssonar, Bergs Einars Dagbjartssonar og Þorvaldar Halldórssonar, og um bassann sáu þeir Guðmundur Óskar Guðmundsson, Ólafur Alexander Ólafsson og Pálmi Gunnarsson, en Pálmi ljáði plötunni sömuleiðis bakraddir. Tómas Jónsson og Magnús Jóhann Ragnarsson spiluðu á hljómborð, píanó og hljóðgervla, Tumi Árnason blés í saxófóninn, og þær Eyja Ragnheiðardóttir og Rut Sigurðardóttir prýddu plötuna með fiðlu- og sellóleik.

„Við erum búin að leggja mikla vinnu í þessa plötu og hlökkum til að deila henni með ykkur. Vonandi hlustið þið með opnu hjarta,“ segir Fannar Ingi í Hipsumhaps í kveðju sinni til hlustenda.

Myndir frá hlustuninni úr Gamla bíói má sjá hér fyrir neðan frá ljósmyndaranum Ara Páli Karlssyni:

Ragnhildur Gísladóttir og Birkir Kristins í góðum gír. Ari Páll

Margt um manninn og kósí fílingur. Ari Páll

Erna Dögg Hjaltadóttir hjá Peroni-umboðinu og Ólöf Ragnarsdóttir fréttakona á RÚV. Ari Páll

Gestir hlustuðu af einlægni. Ari Páll

Ljósadýrð. Ari Páll

Gabríel Breki Kristinsson og Kolbeinn Högni Gunnarsson. Ari Páll

Fannar Ingi í fíling á sviðinu. Ari Páll

Gestir dilluðu sér. Ari Páll

Lagið Meðal mannsins. Ari Páll

Guðmundur Atli Hlynsson í góðum félagsskap. Ari Páll

Ljósin spiluðu skemmtilegt hlutverk á tónleikunum. Ari Páll

Magnús Jóhann Ragnarsson píanósnillingur, Ólafur Alexander bassaleikari Hipsumhaps, Sveinn Breki Hróbjartsson frumkvöðull og Pétur Sigurðsson. Ari Páll

Ari Páll Karlsson og Ágúst Elí Ásgeirsson. Aðsend

Gul hjörtu. Ari Páll

Það breytist ekki neitt syngur Fannar Ingi. Ari Páll

Sól og skjaldbökur. Ari Páll

Glæsilegir gestir. Ari Páll

Hugguleg stemning. Ari Páll

Inga Fríða Guðbjörnsdóttir, Eygló Nanna Arnþórsdóttir, Sara Rún Hinriksdóttir og Bríet Sif Hinriksdóttir. Ari Páll

Metta Sigurrós Eyjólfsdóttir. Ari Páll

Tvö í stuði. Ari Páll

Ísak Ernir og Völundur Hafstað. Ari Páll

Guðbjörg Bjarkadóttir og Aron Ás Kjartansson Ari Páll

Diljá Elíasdóttir og Thelma Rut Elíasdóttir. Ari Páll

Stuðboltar. Ari Páll

Hrafnhildur Gísladóttir í góðum félagsskap. Ari Páll

Lagið Fullur í friði. Ari Páll

Arna Dís Arnþórsdóttir og Gylfi Tryggvason. Ari Páll

Átök. Ari Páll

Ólöf Ragnarsdóttir og Guðmundur Atli Hlynsson fréttamenn RÚV. Ari Páll

Kaktus steig á stokk. Ari Páll

Tónleikagestir í stemningu. Ari Páll

Bergur Einar trommari með góðum vin. Ari Páll

Kaktus Einarsson tónlistarmaður vann plötuna með Fannari. Ari Páll

Read the full article at Vísir

2 reports

VísirIndependentCenter3 days ago
The hip-hum-hops are breaking the silence

Hipsumhaps released their new album 'Algrím hjartans' on June 17th, coinciding with Iceland's national day. The album was previewed at a private event in Gamla Bíó on June 10th, where the band performed the entire album while sharing stories behind each track. The production involved a large team of musicians and technicians, with Fannar Ingi Friðþjófsson and Kaktusi Einarssyni overseeing the recording and mixing process.

Bias read (Center): The article provides a neutral overview of the release of an album by a music group, focusing on the creative process and events surrounding the album launch. There is no political commentary, framing, or bias detectable in the content.

RÚV FréttirState / PublicCenter6 days ago
Hip hops with the album The Heart's Algorithm

The article discusses the Icelandic music duo Hipsumhaps, formed by Fannar Inga Friðþjófsson and Jökuls Breka Þórhallsson. It highlights their early success with songs like 'Lífið sem mig langar í' and 'Best gleymdu leyndarmálin,' followed by their win at the Icelandic Music Awards in 2020. Since 2021, Fannar Inga has continued as a solo artist, releasing two albums. The article also introduces 'Algrím hjartans,' described as an exploration of everyday Icelandic life through music, where listeners are invited into a studio setting to engage with personal questions about daily life. Atli MárSte

Bias read (Center): The article provides a neutral overview of a musical project without taking a stance on any political issue. It focuses on cultural and artistic achievements, which are generally apolitical.