ON
← Back to feed
ISCulture3 days ago

The risk of death for young women is unprecedented

The article discusses the impact of HPV vaccination on reducing cervical cancer deaths among young women. It highlights research published in The Lancet showing no deaths from cervical cancer among women aged 20-24 in England between 2020 and 2024, attributing this to the HPV vaccine. The article also notes that mortality rates decreased by 80% in the same age group between 2015 and 2019. The vaccination program began in Iceland in 2011, initially targeting girls.

Bólusetning gegn HPV-veirunni hófst hérlendis árið 2011.

AFP

HPV-bóluefnið gegn leghálskrabbameini hefur gert það að verkum að nær engin hætta er á að konur undir þrítugu deyi úr sjúkdómnum.

Þetta kemur fram í rannsókn sem birt var í læknatímaritinu The Lancet í dag.

Á árunum 2020 til 2024 lést engin kona á Englandi á aldrinum 20 til 24 ára úr leghálskrabbameini. Þetta er í fyrsta sinn sem ekkert dauðsfall hefur verið skráð í þessum aldurshópi og er talið að bólusetningin hafi bjargað lífi tæplega 200 ungra kvenna.

Drengir nú bólusettir einnig

Auk þess að engin dauðsföll urðu á árunum 2020–24 fækkaði dauðsföllum einnig um 80 prósent í sama aldurshópi fjórum árum þar á undan, á milli 2015 og 2019, samkvæmt rannsókninni þar sem dánartíðni á landsvísu var skoðuð.

„Þökk sé HPV-bólusetningu og leghálsskimun er framtíð þar sem nánast engin fær leghálskrabbamein nú í augsýn,“ sagði Michelle Mitchell, framkvæmdastjóri Cancer Research UK sem fjármagnaði rannsóknina, í samtali við AFP-fréttaveituna.

Rannsóknin var unnin af hópi vísindamanna frá Queen Mary-háskólanum í Lundúnum en ráðist var í rannsóknina í kjölfar þess að Bretar hófu HPV-bólusetningu fyrir börn á aldrinum 12-13 ára.

Ástralir urðu árið 2007 fyrsta landið til þess að hefja HPV-bólusetningarátak í skólum en bólusetning gegn HPV-veirunni hófst árið 2011 á Íslandi. Fyrst voru eingöngu stúlkur bólusettar fyrir veirunni en drengir undir 18 ára aldri voru bólusettir hér á landi í fyrsta sinn í vetur.

Read the full article at Morgunblaðið / mbl.is
Source document: The Lancet

1 reports

Morgunblaðið / mbl.isIndependentCenter3 days ago
The risk of death for young women is unprecedented

The article discusses the impact of HPV vaccination on reducing cervical cancer deaths among young women. It highlights research published in The Lancet showing no deaths from cervical cancer among women aged 20-24 in England between 2020 and 2024, attributing this to the HPV vaccine. The article also notes that mortality rates decreased by 80% in the same age group between 2015 and 2019. The vaccination program began in Iceland in 2011, initially targeting girls.

Bias read (Center): The article presents factual information based on a study published in The Lancet, citing specific data on reduced cervical cancer mortality due to HPV vaccination. There is no evident framing or slant in the language, sourcing, or emphasis. The content remains neutral and informative without taking

Official sources cited

Go to the primary sources (1)

The official sources this coverage is built on. Read them directly to bypass framing.