ON
← Back to feed
ISCrime3 days ago

Supreme Court commuted the death sentence in Akureyri

The Supreme Court has reduced the sentence of a man convicted of killing his girlfriend in Akureyri in April 2024. Originally sentenced to 16 years in prison by the District Court for manslaughter, the Supreme Court found that there was insufficient evidence to prove intent to kill. The conviction was changed to aggravated assault resulting in death due to severe injuries. The sentence was reduced to 14 years. The court noted discrepancies between the findings of the District Court and the High Court regarding whether the defendant had an intention to kill.

Konan lést á Akureyri í apríl árið 2024.

mbl.is/Þorgeir

Hæstiréttur hefur mildað dóm yfir manni sem varð sambýliskonu sinni að bana á Akureyri í apríl 2024. Maðurinn var dæmdur í 16 ára fangelsi í Landsrétti fyrir manndráp en Hæstiréttur taldi ekki fullsannað að hann hefði haft ásetning til að bana konunni.

Í stað manndráps var maðurinn sakfelldur fyrir stórfellda líkamsárás sem leiddi til bana vegna stórfellds gáleysis. Refsingin var lækkuð úr 16 árum í 14 ára fangelsi.

Hæstiréttur veitti áfrýjunarleyfi í málinu á þeim grundvelli að niðurstaðan kynni að hafa verulega almenna þýðingu. Sérstaklega var litið til þess að Héraðsdómur Norðurlands eystra og Landsréttur höfðu komist að ólíkri niðurstöðu um hvort maðurinn hefði haft ásetning til að bana sambýliskonu sinni. Héraðsdómur taldi sannað að maðurinn hefði beitt konuna grófu ofbeldi sem varð henni að bana en ekki að hann hefði haft manndrápsásetning. Landsréttur sneri þeirri niðurstöðu við og sakfelldi hann fyrir manndráp.

Beitti margþættu ofbeldi

Konan lést aðfaranótt 22. apríl 2024 eftir ofbeldi á heimili parsins á Akureyri. Samkvæmt dóminum hafði maðurinn beitt hana margþættu ofbeldi sem beindist meðal annars að höfði, hálsi, brjóstkassa, kviði og útlimum. Dánarorsök var alvarlegur áverki á efri garnahengisbláæð sem olli mikilli innvortis blæðingu.

Í niðurstöðu Hæstaréttar segir að þótt sannað sé að maðurinn hafi banað sambýliskonu sinni sé varhugavert að telja fram komna fulla sönnun fyrir því að hann hafi á verknaðarstundu haft ásetning til að valda dauða hennar. Rétturinn vísaði meðal annars til þess að ekki lægi fyrir nákvæmlega hvernig hinn banvæni áverki hefði verið veittur og að ekki yrðu dregnar afdráttarlausar ályktanir um manndrápsásetning af háttsemi mannsins fyrir eða eftir árásina.

Sakhæfur þrátt fyrir heilabilun

Hæstiréttur staðfesti jafnframt sakfellingu mannsins fyrir annað ofbeldisbrot gegn konunni sem átti sér stað í febrúar 2024. Þá var staðfest niðurstaða lægri dómstiga um að maðurinn væri sakhæfur þrátt fyrir að glíma við heilabilun. Fyrir dómi lágu bæði undir- og yfirmatsgerðir sérfræðinga og komust allir matsmenn að þeirri niðurstöðu að hann hefði verið sakhæfur þegar brotin voru framin.

Atvikið átti sér stað í fjölbýlishúsi.

mbl.is/Þorgeir

Heimilisofbeldi um langt skeið

Í dóminum kemur jafnframt fram að lögregla taldi líklegt að konan hefði sætt heimilisofbeldi af hálfu mannsins um áratugaskeið.

Við ákvörðun refsingar leit Hæstiréttur meðal annars til þess að ofbeldið hefði verið hrottafengið, að brotin hefðu verið framin á heimili parsins sem hefði átt að vera griðastaður brotaþola og að atlögurnar hefðu verið tilefnislausar. Maðurinn var dæmdur til 14 ára fangelsisvistar og kemur gæsluvarðhald sem hann hefur sætt frá 22. apríl 2024 til frádráttar refsingunni.

Read the full article at Morgunblaðið / mbl.is
Source document: Hæstiréttur

1 reports

Morgunblaðið / mbl.isIndependentCenter3 days ago
Supreme Court commuted the death sentence in Akureyri

The Supreme Court has reduced the sentence of a man convicted of killing his girlfriend in Akureyri in April 2024. Originally sentenced to 16 years in prison by the District Court for manslaughter, the Supreme Court found that there was insufficient evidence to prove intent to kill. The conviction was changed to aggravated assault resulting in death due to severe injuries. The sentence was reduced to 14 years. The court noted discrepancies between the findings of the District Court and the High Court regarding whether the defendant had an intention to kill.

Bias read (Center): The article reports on a legal decision without taking a stance on the case or its implications. It presents facts from the court ruling and does not exhibit biased language or selective sourcing.

Official sources cited

Go to the primary sources (1)

The official sources this coverage is built on. Read them directly to bypass framing.