Flugvirkjar hafa samþykkt að farið verði í verkfallsaðgerðir.
mbl.is/Árni Sæberg
Niðurstaða könnunar sem gerð var meðal flugvirkja Icelandair á dögunum 15.–17. júní bar með sér að um 70% flugvirkja eru hlynntir því að fara í verkfallsaðgerðir.
Þátttaka í könnuninni var tæp 75% og fór hún fram með „óformlegum hætti“ en inni á lokuðu svæði í appi sem einungis flugvirkjar hafa aðgang að.
Flugvirkjar hafa verið án samnings í um sjö mánuði og nokkuð kurr hefur verið meðal starfsmanna sem neitað hafa að taka að sér aukavinnu til þess að sinna viðhaldsverkefnum flugvéla hjá Icelandair. Fyrir vikið eru viðhaldsverkefni sögð hrannast upp hjá vélum fyrirtækisins.
Ekkert ákveðið
Samninganefnd flugvirkja er ekki bundin af niðurstöðunni en hefur hana þó í farteskinu við framhald viðræðna hjá ríkissáttasemjara.
Óskar Einarsson, formaður Flugvirkjafélags Íslands, staðfestir að könnunin hafi verið gerð.
Hann segir að ekki hafi verið gert neitt plan um aðgerðir að svo stöddu.
„Þarna var verið að kanna hug manna ef til þess kæmi að menn færu í aðgerðir. Það er ekkert óeðlilegt eftir sjö mánaða viðræður,“ segir Óskar.
Hann segir að menn þurfi að gefa fyrirvara hjá ríkissáttasemjara áður en farið er í aðgerðir og að það hafi ekki verið gert.
Boðnar almennar hækkanir
Flugvirkjar lögðu fram kröfugerð við upphaf viðræðna en að sögn Óskars hefur lítið gengið við samningaborðið. Spurður hvort eitthvað tilboð hafi verið gert segir Óskar að það hafi verið í takti við aðra samninga á vinnumarkaði. Almennt snúa þeir að 3,5% launahækkun á ári.
Samkvæmt heimildum mbl.is telja flugvirkjar sig hins vegar eiga inni kjaraaukningu sökum þess að þeir hafi setið eftir kjörum flugmanna hjá Icelandair. Er þá óátalin sú hækkun sem þeir vilja fá umfram þá „leiðréttingu.“
„Það eru sex ár síðan skrifað var undir samning síðast og það er ýmislegt sem við viljum sjá og breyta og fyrirtækið er einnig með sínar kröfur, eðlilega,“ segir Óskar.
Hann segir stöðuna ekki góða. „Hún er orðin frekar þröng og súr.“
Óskar Einarsson er formaður Flugvirkjafélags Íslands.
Ljósmynd/FFÍ
Tímasetningin engin tilviljun
Mál manna í flugbransanum er að það sé engin tilviljun að Flugvirkjafélagið kanni hug félagsmanna á þessum tímapunkti. Þannig hefur Alþingi samið um starfslok í dag og því sé þessi tímapunktur valinn.
Alþingi setti lög á verkfall flugvirkja hjá Icelandair árið 2014. Í því tilviki var Alþingi kallað saman að sumri til eftir að flugvirkjar höfðu boðað ótímabundið verkfall frá og með 19. júní. Höfðu þeir þá þegar farið í verkfall í einn dag, þann 16. júní.
Mál manna er að verkfallsaðgerðir núna myndu að líkindum vera í formi svokallaðra skæruverkfalla eða styttri aðgerða sem hafa tímabundin áhrif á starfsemina.
Read the full article at Morgunblaðið / mbl.is →