ON
← Back to feed
ISEconomy3 days ago

Eyglo and Birgir Bieltvedt sold the factory in Fossvogi for a high price

Eygló Björk Kjartansdóttir and Birgir Þór Bieltvedt have sold their house in Fossvogi. The house, built in 1972, has been renovated extensively and includes a garage built in 1976. It is described as unique, large, and located on two levels with a garden in the south and a living room in the north. The couple has owned the property for nearly two decades and has been active in Icelandic business life.

Eygló Björk Kjartansdóttir og Birgir Þór Bieltvedt hafa selt raðhúsið.

Samsett mynd

Hjónin og fjárfestarnir, Birgir Þór Bieltvedt og Eygló Björk Kjartansdóttir, hafa átt raðhús við Kúrland í Fossvogi í tæplega tvo áratugi. Húsið er einstakt á allan hátt. Það er 306 fm að stærð og var reist 1972. Húsinu fylgir bílskúr sem er í bílskúralengju í götunni. Sú lengja var byggð 1976.

Þessi raðhús við Kúrland eru eftirsótt því þau eru í stærra lagi og ekki á pöllum heldur á tveimur hæðum. Garðurinn er í suður og eldhúsið í norður. Þegar hjónin festu kaup á húsinu tóku þau það allt í gegn og stóðu framkvæmdir yfir lengi. Allt var endurnýjað að innan og garðurinn var endurhannaður á smart hátt.

Húsið er fallega hannað og er á fallegum stað í Fossvogi.

mbl.is/Eyþór Árnason

Umsvifamikil

Hjónin hafa verið umsvifamikil í íslensku viðskiptalífi. Hann lærði markaðsfræði og hönnun í Parsons School of Design í New York og útskrifaðist 1992 og hún er stjórnmálafræðingur. Hjónin hafa verið með lögheimili í Danmörku og því hefur Kúrlandið verið þeirra dvalarstaður á Íslandi. Hjónin hafa verið töluvert í veitingageiranum og hafa haft tilfinningu fyrir því hvað landsmenn eru sólgnir í. Þau hafa til dæmis keypt og selt pítsastaðinn Dominos þrisvar en þau seldu sig út úr rekstrinum í lok síðasta árs.

Nú hafa hjónin selt Eyju fjárfestingafélagi ehf. húsið. Félagið er reyndar ekki alveg ókunnugt því það er í eigu Eyglóar Bjarkar Kjartansdóttur. Félagið keypti húsið á 250.000.000 kr. sem er vel í lagt ef miðað er við meðalfasteignaverð á raðhúsum í hverfinu.

Um er að ræða endaraðhús sem búið er að endurhanna.

mbl.is/Eyþór Árnason

Read the full article at Morgunblaðið / mbl.is

1 reports

Morgunblaðið / mbl.isIndependentCenter3 days ago
Eyglo and Birgir Bieltvedt sold the factory in Fossvogi for a high price

Eygló Björk Kjartansdóttir and Birgir Þór Bieltvedt have sold their house in Fossvogi. The house, built in 1972, has been renovated extensively and includes a garage built in 1976. It is described as unique, large, and located on two levels with a garden in the south and a living room in the north. The couple has owned the property for nearly two decades and has been active in Icelandic business life.

Bias read (Center): The article provides factual information about the sale of a private residence without any political commentary, framing, or bias. It focuses on the property details and the owners' background but does not take a stance on political issues.