ON
← Back to feed
ISCulture4 days ago

One-year-old child shot dead by police

A one-year-old child named Kohen Kartier Wiley was shot dead by a police officer in Mississippi on Sunday, June 14. The incident occurred at a Walmart store where Wiley was with his mother and aunt. According to a statement from law enforcement, the mother and aunt were suspected of shoplifting. Police from the city of Senatobia and the Tate County sheriff's office were responding to the situation when the shooting happened. The officer who fired has not been identified. A statement from the Mississippi Department of Public Safety indicated that the shooting occurred after two individuals were

Lögreglumaður í Mississippi skaut hinn eins árs gamla Kohen Kartier Wiley til bana á sunnudaginn síðasta, þann fjórtánda júní. Wiley hafði verið í verslun Walmart ásamt móður sinni og frænku þegar skotið var á þau þar sem þau óku um bílastæðið á silfurlituðum fólksbíl. Lögregla segir í yfirlýsingu að móðir hans og frænka hafi verið grunaðar um búðarhnupl.

Lögreglumenn frá lögreglunni í borginni Senatobia og sýslumannsembættinu í Tate-sýslu voru að störfum þegar atvikið átti sér stað líkt og fram kemur í frétt miðilsins Mississippi free press . Lögreglumaðurinn sem skaut Wiley hefur ekki verið nafngreindur.

Í umfjölluninni er einnig greint frá því að almannavarnadeild Mississippi hafi sent frá sér yfirlýsingu samdægurs þar sem því var haldið fram að skotárásin hafi átt sér stað eftir að annar tveggja einstaklinga ók „í átt að“ lögreglumönnum.

Hafi vitað að það væri ungabarn í bílnum

Þá segir að á mynd sem fréttastofa Mississippi Free Press hafi undir höndunum sjáist á bílnum mörg skotför á framrúðunni, þar á meðal skotgat farþegamegin. Það sé athyglisvert að í yfirlýsingu almannavarnadeildarinnar virðist viðurkennt að lögreglan hafi séð Kohen Wiley áður en einstaklingarnir fóru inn í bílinn og áður en lögreglumaðurinn hleypti af skoti.

„Lögreglumenn brugðust við útkalli vegna búðarþjófnaðar í Walmart við U.S. 51. Þegar á staðinn var komið mættu lögreglumenn tveimur einstaklingum og ungbarni sem flúðu úr versluninni inn í bifreið. Lögreglumenn reyndu að stöðva bifreiðina en ökumaðurinn ók í átt að lögreglumönnunum og var næstum búinn að aka á einn þeirra,“ segir meðal annars í yfirlýsingunni.

Í yfirlýsingu frá lögreglu segir að lögreglumenn hafi reynt að stöðva bifreiðina en ökumaðurinn hafi ekið í átt að lögreglumönnunum. Getty

„Lögreglumaður hleypti þá af skoti og bifreiðin flúði af vettvangi. Einstaklingarnir komu á sjúkrahús á staðnum þar sem eitt ungbarn í bifreiðinni var úrskurðað látið og annar einstaklingur var með lífshættulega áverka. Engir lögreglumenn hlutu alvarlega líkamlega áverka.“

Frænka Wiley í lífshættu

Fjölskyldumeðlimir Kohen Wiley hafa neitað því að nokkur búðarþjófnaður hafi átt sér stað en bandaríska sjónvarpsstöðin WREG-TV í Memphis greindi frá því að fyrir skotárásina hafi vitni séð tvær konur koma út úr versluninni: önnur með einn bleiupakka og hin með ungabarnið.

Haft er eftir fjölskyldunni að móðir Kohens hafi setið í farþegasætinu og haldið á barninu þegar lögreglumaðurinn skaut að bílnum og að frænka þeirra, sem hafi ekið bílnum, væri í lífshættu. Annað vitni á að hafa sagt fréttastofunni að hún hafi séð bílinn aka í burtu með lögreglumenn á eftir honum rétt áður en hún heyrði skothvelli.

Lögreglan í Senatobia sendi frá sér yfirlýsingu á samfélagsmiðlum skömmu eftir skotárásina, þar sem staðfest var að rannsóknin hefði verið afhent rannsóknarlögreglu Mississippi og lofað gagnsæi þegar fram liðu stundir.

„Lögreglan í Senatobia rannsakar nú skotárás þar sem lögreglumaður átti hlut að máli, sem átti sér stað í dag um klukkan 14:05 í Walmart,“ sagði í yfirlýsingunni. „Fyrstu fregnir herma að lögreglumenn hafi brugðist við tilkynningu um búðarþjófnað, sem leiddi til þess að lögreglumenn hleyptu af skotvopnum sínum.“

Read the full article at Vísir
Source document: Mississippi Free Press

1 reports

VísirIndependentCenter4 days ago
One-year-old child shot dead by police

A one-year-old child named Kohen Kartier Wiley was shot dead by a police officer in Mississippi on Sunday, June 14. The incident occurred at a Walmart store where Wiley was with his mother and aunt. According to a statement from law enforcement, the mother and aunt were suspected of shoplifting. Police from the city of Senatobia and the Tate County sheriff's office were responding to the situation when the shooting happened. The officer who fired has not been identified. A statement from the Mississippi Department of Public Safety indicated that the shooting occurred after two individuals were

Bias read (Center): The article reports on a tragic event involving a police shooting of a young child without apparent political framing or bias. It provides factual details about the incident, including the location, the involvement of law enforcement, and the circumstances leading up to the shooting. There is no use

Official sources cited

Go to the primary sources (1)

The official sources this coverage is built on. Read them directly to bypass framing.