ON
← Back to feed
ISSports2 days ago

The debate in English football: defending champions Arsenal start against newcomers

Arsenal begins their title defense against newly promoted Coventry in the Premier League on August 21. The season starts later than usual due to the King's coronation and will end on May 30, 2027. Other early matches include Manchester United facing Hull City and Liverpool playing under new manager Andoni Iraola.

Englandsmeistarar Arsenal hefja titilvörn sína í fyrsta leik nýrrar leiktíðar í ensku úrvalsdeildinni, þegar þeir mæta nýliðum Coventry, undir stjórn Franks Lampard, föstudaginn 21. ágúst.

Leikjadagskrána eins og hún leggur sig má nú finna á vef ensku úrvalsdeildarinnar, með því að smella hér að neðan.

Enska úrvalsdeildin hefst aðeins síðar en ella vegna HM, eða 34 dögum eftir úrslitaleik mótsins. Leiktíðinni lýkur með lokaumferðinni sunnudaginn 30. maí 2027, sex dögum fyrir úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu.

Alls verða 33 umferðir um helgar en fimm umferðir spilaðar í miðri viku. Ljóst er að Evrópukeppnirnar munu hafa mikil áhrif en níu ensku lið náðu Evrópusæti á síðustu leiktíð.

Nýliðar Hull fá Man. Utd í heimsókn

Upphafsleikurinn verður fyrsti leikur Coventry í ensku úrvalsdeildinni í 25 ár en liðið vann næstefstu deildina á síðustu leiktíð.

Manchester United sækir aðra nýliða, Hull City, heim laugardaginn 22. ágúst og þriðju nýliðarnir, Ipswich, mæta Sunderland sama dag.

Iraola byrjar á leik við Newcastle

Liverpool spilar sinn fyrsta leik undir stjórn Andoni Iraola þegar liðið sækir Newcastle heim sunnudaginn 23. ágúst, og Manchester City tekur á móti Bournemouth sama dag í slag tveggja liða með nýja stjóra.

Chelsea sækir Fulham heim í Lundúnaslag mánudaginn 24. ágúst, í fyrsta leik Chelsea undir stjórn Xabi Alonso. Fulham á eftir að ráða arftaka Marco Silva.

Fyrsta umferð ensku úrvalsdeildarinnar:

Föstudagur, 21. ágúst:

Arsenal - Coventry (19:00)

Laugardagur, 22. ágúst:

Hull City v Manchester United (11:30)

Everton v Crystal Palace (14:00)

Ipswich v Sunderland (14:00)

Nottingham Forest v Leeds (14:00)

Brentford v Tottenham (16:30)

Sunnudagur, 23. ágúst:

Brighton v Aston Villa (13:00)

Manchester City v Bournemouth (13:00)

Liverpool v Newcastle (15:30)

Mánudagur, 24. ágúst:

Fulham v Chelsea (19:00)

Read the full article at Vísir

1 reports

VísirIndependentCenter2 days ago
The debate in English football: defending champions Arsenal start against newcomers

Arsenal begins their title defense against newly promoted Coventry in the Premier League on August 21. The season starts later than usual due to the King's coronation and will end on May 30, 2027. Other early matches include Manchester United facing Hull City and Liverpool playing under new manager Andoni Iraola.

Bias read (Center): The article provides factual information about sports schedules and team changes without any political commentary or biased language.