Breski herinn stöðvaði skip úr skuggaflota Rússa á Ermarsundi snemma í morgun, að sögn Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands en aðgerðin stóð yfir í um sex klukkustundir. Hann segir þetta vera í fyrsta sinn sem breski herinn fer um borð í rússneskt olíuskip á Ermasundi.
Sérsveitarmenn úr Konunglega landgönguliðinu og sérþjálfaðir lögreglumenn frá bresku rannsóknarlögreglunni fóru um borð í olíuskipið, sem sætir viðskiptaþvingunum, að sögn varnarmálaráðuneytisins. En hinn svokallaði skuggafloti er floti skipa sem Rússar nota til þess að komast í kringum viðskiptaþvinganir vestrænna ríkja, til njósna og skemmdarverka í Evrópu.
Skipið, Smyrtos, verði kyrrsett og fylgst verði með því með tilliti til umhverfis- eða öryggisáhættu undan suðurströnd Englands á meðan rannsókn standi yfir, bætti ráðuneytið við. Er þetta meðal þess sem erlendar fréttaveitur á borð við Al Jazeera og AP herma.
„Þessi aðgerð er enn eitt áfallið fyrir Rússland og minnir þá sem fjármagna stríð Pútíns í Úkraínu á að þeir geta ekki falið sig,“ sagði Starmer í yfirlýsingunni en nýskipaður varnarmálaráðherra, Dan Jarvis, sagði einnig að „Rússland treysti á skuggaflota sinn til að fjármagna átökin í Úkraínu og íhlutun Breta sé áfall fyrir ólöglegt stríð Pútíns“.
Ekki nægilegt fjármagn í ljósi ógnarinnar
Í lifandi vakt The Guardian kemur fram að atvikið eigi sér stað dögum eftir að fyrrverandi hernaðarmálaráðherra, Al Carns, og varnarmálaráðherra, John Healey, hafi sagt af sér embætti eftir langvarandi deilur um fjárfestingaráætlun í varnarmálum.
Þeir hafi sagt að áætlunin, sem hafi tafist ítrekað, væri verulega vanfjármögnuð og stæðist ekki þær kröfur sem varnarmálaráðuneytið þyrfti að uppfylla til að tryggja öryggi Bretlands á jafn óstöðugum tímum.
Healey hafi jafnframt sagt að ríkisstjórnin væri aðeins reiðubúin að veita tíu milljarða punda, eða ríflega 1,6 milljarða íslenskra króna, í viðbótarfjármagn, upphæð sem hann sagði vera langt um minni en það sem þörf væri á í ljósi ógnarinnar frá Rússlandi og annarra stórra öryggisáskorana.
Read the full article at Vísir →📄Source document: UK Prime Minister Keir Starmer
2 reports
VísirIndependentCenter7 days ago Breski herinn halted a ship from the Russian shadow fleetThe British military stopped a Russian shadow fleet ship in the North Sea early this morning, according to UK Prime Minister Keir Starmer. The operation lasted approximately six hours. This is reported to be the first time the British military has intercepted a Russian oil tanker in the North Sea.
Bias read (Center): The article reports an event involving military action by the UK against a Russian vessel without overtly biased language or selective sourcing. It presents the facts as stated by the UK Prime Minister without additional commentary or framing that would indicate a clear ideological slant.
Official sources cited
- government UK Prime Minister Keir Starmer
RÚV FréttirState / PublicCenter7 days ago British military halts Russian oil tanker in North SeaThe British military has halted a Russian oil tanker, named Smyrtos, in the North Sea during its journey through the English Channel. The action was carried out for six hours, and the ship will remain under British military surveillance until it sails south past the coast of England. Defence Secretary Dan Jarvis stated that Russia relies on the shadow fleet to fund its war in Ukraine, calling the move a blow in the fight against Putin's illegal war. The shadow fleet consists of ships owned by Russian authorities with unclear ownership, used to transport approximately 75% of Russia's exported原油
Bias read (Center): The article presents facts about the UK's actions against a Russian oil tanker without overtly biased language or selective sourcing. It includes statements from UK officials and provides context about the shadow fleet's role in funding Russia's war effort. There is no clear ideological framing or o
Official sources cited
- government Keir Starmer
- government Dan Jarvis
- government Emmanuel Macron