ON
← Back to feed
ISCulture2 days ago

Never again competition for electricity on the campsite

The article discusses how the availability of Bluetti power banks has changed the way people think about electricity during travel in Iceland. Previously, travelers had to compete for power outlets at rest stops, but now they can simply bring a fully charged power bank, plug in their devices, and have enough electricity without relying on fixed outlets. Orkuland, a company offering these solutions, highlights the flexibility this provides for various users, including tourists, car owners, cyclists, and businesses.

Magnús Magnússon sölustjóri Orkulands og Jón Axel Ólafsson forstjóri Orkulands þar sem má fá Bluetti orkubanka sem hefur breytt því hvernig fólk hugsar um rafmagn á ferðalögum.

Ljósmynd/Aðsend

Ferðalög um Ísland snúast oft um frelsi, að geta lagt af stað þegar hentar, stoppað þar sem útsýnið er fallegast og notið kyrrðarinnar án þess að þurfa stöðugt að hugsa um næsta rafmagnstengil. Fyrir eigendur húsbíla, hjólhýsa og ferðavagna hefur rafmagn þó lengi verið eitt af stóru praktísku málunum. Þessi veruleiki hefur þó breyst hratt með tilkomu öflugra Bluetti orkubanka að sögn Jóns Axels Ólafssonar forstjóra Orkulands .

„Bluetti hefur í raun breytt því hvernig fólk hugsar um rafmagn á ferðalögum. Í stað þess að þurfa að keppast um rafmagnstengla á tjaldstæðum getur fólk einfaldlega mætt með fullhlaðinn orkubanka, lagt bílnum, slakað á og notið þess að hafa nóg rafmagn.“

Það eykur töluvert frelsi að vera með Bluetti orkubanka á ferðalögum enda mikill munur að vera með eigin orku með sér.

Ljósmynd/Aðsend

Orkuland hefur á undanförnum misserum kynnt Bluetti lausnir fyrir fjölbreyttum hópi notenda: ferðafólki, húsbílaeigendum, hjólhýsaeigendum, iðnaðarmönnum, sumarbústaðaeigendum, fyrirtækjum og bændum. Lausnirnar eru ólíkar að stærð og getu, en hugmyndin er alltaf sú sama: að tryggja rafmagn þar sem það vantar.

„Það er mikill munur á því að vera háður rafmagnstengli og að vera með eigin orku með sér,“ segir Magnús Magnússon, sölustjóri Orkulands. „Fólk vill geta hitað kaffi, hlaðið síma, notað tölvur, ljós, kælibúnað og önnur tæki án þess að hafa áhyggjur.  Bluetti  gerir þetta einfalt.“

Fyrir eigendur húsbíla, hjólhýsa og ferðavagna hefur rafmagn lengi verið eitt af stóru praktísku málunum. Þessi veruleiki hefur þó breyst hratt með tilkomu öflugra Bluetti orkubanka.

Ljósmynd/Aðsend

Orkubanki sem breytir upplifuninni

Bluetti  orkubanka er hægt að hlaða með hefðbundnu 220 volta rafmagni, með sólarsellum eða með bílarafmagni, allt eftir því hvað hentar best hverju sinni. Þannig getur ferðafólk lagt af stað með fullhlaðinn orkubanka og síðan bætt á hann á ferðinni, til dæmis með sólarsellum yfir daginn eða hleðslu úr bílnum á meðan ekið er á milli staða.

Sérstaklega hefur Elite200 orkubankinn frá Bluetti vakið mikla athygli. Að sögn Magnúsar er hann langvinsælasti orkubanki landsins í sínum flokki og er nú kominn í yfir 300 húsbíla og hjólhýsi hér á landi.

„Elite200 hefur slegið í gegn vegna þess að hann hittir beint í þarfir ferðafólks. Hann er öflugur, einfaldur í notkun og leysir rafmagnsmálin hjá mjög mörgum. Fyrir fólk sem ferðast mikið um landið er þetta einfaldlega búnaður sem breytir upplifuninni,“ segir Magnús.

Jón Axel tekur undir það og segir að viðbrögðin frá notendum hafi verið einstaklega jákvæð. „Við heyrum það aftur og aftur að fólk er í skýjunum með orkubankana sína. Það talar um hversu einfalt er að nota þá, hversu traustir þeir eru og hvað það veitir mikla ró að vita að rafmagnið er til staðar. Þetta snýst ekki bara um þægindi heldur líka öryggi.“

Bluetti lausnirnar eru ólíkar að stærð og getu en hugmyndin er alltaf sú sama: að tryggja rafmagn þar sem það vantar.

Ljósmynd/Aðsend

Rafmagn sem nýtist hvar sem er

Einn af stóru kostunum við færanlega orkubanka er að þeir nýtast ekki aðeins í ferðabílnum eða hjólhýsinu. Ef rafmagn fer af heima, ef þörf er á varaafli í sumarbústað eða á vinnustað, er hægt að taka orkubankann með sér þangað sem hans er þörf.

„Þetta er eitt af því sem margir átta sig ekki á fyrr en þeir eru komnir með tækið,“ segir Jón Axel. „Orkubankinn sem er í bílnum um helgar getur líka nýst sem varaafl heima. Það er ekkert mál að taka hann úr bílnum eða hjólhýsinu og nota hann þar sem þörfin kemur upp.“

Bluetti-vörurnar njóta mikillar virðingar og vinsælda á heimsvísu og eru almennt þekktar fyrir gæði, styrk og áreiðanleika. Orkubankarnir koma með fimm til tíu ára ábyrgð, eftir gerðum, og öll þjónusta við íslenska viðskiptavini fer fram í gegnum starfsfólk Orkulands sem sinnir hagsmunum Bluetti á Íslandi.

Einn af stóru kostunum við færanlega orkubanka er að þeir nýtast ekki aðeins í ferðabílnum eða hjólhýsinu því það er hægt að taka orkubankann með sér þangað sem hans er þörf.

Ljósmynd/Aðsend

Notendahópurinn er líka orðinn mun breiðari en aðeins ferðafólk. Iðnaðarmenn nota  Bluetti   þar sem ekki er rafmagn á verkstað. Eigendur rafmagnshjóla nota orkubanka til að geta hlaðið hjólin í lengri ferðum. Sumarbústaðaeigendur nýta þá sem varaafl og sífellt fleiri fyrirtæki skoða möguleikana á stærri varaorkukerfum.

„Rafmagn er orðið hluti af öryggistilfinningu fólks,“ segir Magnús. „Hvort sem fólk er á fjöllum, á ferðalagi, í vinnu eða heima hjá sér þá vill það vita að það geti haldið nauðsynlegum tækjum gangandi.“

Starfsfólk Orkulands veitir fría ráðgjöf um hvaða lausnir henta hverjum og einum, hvort sem um er að ræða lítinn orkubanka fyrir ferðalagið, stærri lausn fyrir húsbíl eða öflug varaorkukerfi fyrir heimili, fyrirtæki eða bújarðir.

„Markmiðið…

Read the full article at Morgunblaðið / mbl.is

2 reports

RÚV FréttirState / PublicCenter2 days ago
I have a dream to entertain in every town in Iceland

Grímur Jakob Birgis, a known figure associated with the Grímur movement, is traveling around Iceland this summer and sharing his experience of quitting nicotine use. He discusses his progress in a recent interview with RÚV, stating that he has been nicotine-free since mid-January. He also mentions the attention he has received from others trying to quit nicotine, and expresses his desire to visit new places across Iceland.

Bias read (Center): The article provides a factual account of Jakob Birgis' personal journey and travel plans without overtly favoring any political perspective. It includes direct quotes from the individual and does not present biased language or selective sourcing.

Morgunblaðið / mbl.isIndependentCenter2 days ago
Never again competition for electricity on the campsite

The article discusses how the availability of Bluetti power banks has changed the way people think about electricity during travel in Iceland. Previously, travelers had to compete for power outlets at rest stops, but now they can simply bring a fully charged power bank, plug in their devices, and have enough electricity without relying on fixed outlets. Orkuland, a company offering these solutions, highlights the flexibility this provides for various users, including tourists, car owners, cyclists, and businesses.

Bias read (Center): The article focuses on technological advancements in portable energy storage and their impact on travel convenience. It does not take a political stance, nor does it present any biased framing or selective sourcing. The content is neutral and descriptive of product capabilities and user benefits.