ON
← Back to feed
ISCulture2 days ago

Responding to dissatisfaction: "It's obviously not out there"

Jakob Frímann Magnússon, organizer of the event, states it is natural for stricter rules to apply at the Þingvellir National Park compared to those at Kaleo's concert in Vaglaskóli last year. The event at Bergmál in the middle of the Þingvellir National Park has nearly sold out, with an expected attendance of around 20,000 people despite complaints about strict rules and high ticket prices. Rules were introduced due to reports from local residents, park supervisors, and catering staff in the area. It was stated from the beginning that this would not be an 'outdoor' or festival-style event. On

Jakob Frímann Magnússon tónleikahaldari segir það eðlilegt að aðrar og mun stífari reglur gildi í Þingvallaþjóðgarði en giltu á tónleikum Kaleo í Vaglaskógi fyrir ári síðan.

Samsett mynd/mbl.is/Arnþór/Eyþór

Miðar á tónlistarveisluna Bergmál í miðjum Þingvallaþjóðgarði eru næstum uppseldir og því útlit fyrir að nærri 20.000 manns muni skunda á Þingvöll á morgun, þrátt fyrir óánægju miðahafa með stífar reglur og hátt heildarverð tónleikanna.

Jakob Frímann Magnússon, skipuleggjandi hátíðarinnar, segir reglurnar tilkomnar vegna tilmæla frá viðbragðsaðilum, umsjónaraðilum þjóðgarðsins og veitingamanna á svæðinu.

Eðlilegt sé að aðrar reglur gildi í Þingvallaþjóðgarði en giltu á tónleikum Kaleo í Vaglaskógi fyrir ári síðan, enda allt önnur lögmál sem gildi í þjóðgarðinum Þingvöllum og auk þess helmingi fleiri gestir væntanlegir. Þá hafi það legið fyrir frá upphafi að ekki yrði um „útilegu“ eða útihátíðarbrag að ræða.

Miðar að seljast á undir 10.000 krónur

Fram kemur á sölusíðunni moment.is að nær allir 20.000 miðarnir sem fáanlegir voru séu seldir.

Borið hefur hins vegar á óánægju með stífar reglur í kringum tónleikana, til dæmis bann við að koma með eigin mat, drykki og útileguhúsgögn, og eru miðahafar margir hverjir farnir að framselja miða sína, jafnvel á töluvert lægra verði eins og 9.500 krónur.

Taldist blaðamanni svo til að upp undir 70 miðar hefðu verið auglýstir til sölu frá miðnætti í dag, þar af nánast allir undir forsöluverði.

Facebook-síðan Tónlistarviðburðir á Íslandi hefur orðið að vettvangi reiðifærslna yfir reglunum, og einn nafnlaus notandi á lýsti reynslu sinni til að mynda sem „stærstu vörusvikum ever!“.

„Margir hafa eflaust vonast eftir útilegustemningu, geta smurt sér nesti og tekið drykki með sér sem og tjaldstól til að njóta í íslenskri náttúru,“ skrifaði sá hinn sami. „Eins og þetta lítur út núna skaltu bara taka nóg af peningum með og vona það besta.“

Telur gesti ekki þurfa að kvíða neinu

Jakob Frímann segir hinar stífu reglur tilkomnar vegna tilmæla lögreglu, umsjónaraðila Þingvallaþjóðgarðs og veitingamanna á svæðinu, og óttast ekki að nauðsynjavörur á borð við barnamat verði teknar af fólki þó ekki megi koma með eigin mat inn á svæðið.

„Það er enginn að fara að leita beinlínis að einhverjum matvælum, það er fyrst og fremst vopnaleit, en það er auðvitað ekki ætlast til þess að fólk sé að bera með sér einhver hlaðborð af mat,“ segir hann.

„Eins hefur lögreglan verið með tilmæli varðandi tjaldstóla og regnhlífar, því stundum hefur slíkt verið notað sem einhvers konar vopn, en við erum ekki að gera ráð fyrir regni og það er nóg af sætum út um víðan völl hér, bæði stólum og borðum og brettum sem menn geta setið á.

Ég held að það muni enginn þurfa að kvíða neinu hér.“

Hvorki útilega né útihátíð

Aðspurður um það hvort hann hafi áhyggjur af því að útilegustemningin muni líða fyrir þessi tilmæli, eins og einhverjir tónleikagestir hafa kvartað yfir, segir Jakob Frímann að það hafi aldrei verið tilætlunin að skapa slíka stemningu.

„Þetta er náttúrulega ekki útilega eða útihátíð, það stóð aldrei til að hér yrði tjaldað eða sofið yfir nótt,“ segir hann. „Það er ekki hluti af áætluninni – þetta byrjar klukkan ellefu í fyrramálið og lýkur á miðnætti annað kvöld.“

Tjaldsvæðið að Leirum á Þingvöllum hefur verið lagt undir bílastæði fyrir tónleikana og ekki verður hægt að tjalda á svæðinu.

mbl.is/Árni Sæberg

Skýr skilyrði í framkvæmdasamningnum

Í samtali við Morgunblaðið í dag segir Egill Tómasson, svæðisstjóri tónleikasvæðisins, hið sama: að legið hafi fyrir frá undirritun framkvæmdasamningsins að stífar reglur yrðu að gilda um tónleikahaldið, enda yrði vettvangur tónleikanna einstakt og verndað svæði.

„Það voru skýr skilyrði í framkvæmdasamningnum að þetta væri ekki útihátíð heldur tónlistarveisla sem stæði bara yfir laugardaginn og fram á kvöld,“ segir hann, og að því hafi til að mynda ekki verið heimilt að koma upp tjaldsvæði.

Fari með ennþá breiðara bros

Jakob Frímann segir það ekki óeðlilegt að reglurnar séu stífari en á öðrum tónleikum sem fram hafa farið hérlendis undir berum himni, til dæmis tónleikum Kaleo í Vaglaskógi í fyrra.

„Það eru töluvert önnur lögmál sem gilda á þessum helga bletti sem þjóðgarðurinn er og það er að mörgu leyti ólík viðmið og voru í Vaglaskógi í fyrra, enda eru hér liðlega helmingi fleiri væntanlegir. En við unum því því allir eru með sama meginmarkmið í huga – að tryggja sem bestan, öruggastan og ánægjulegastan viðburð fyrir alla,“ segir hann.

Stefnt sé að því að menn komi með bros á vör og yfirgefi tónleikasvæðið með enn þá breiðara bros þegar viðburðinum lýkur á þessum lengsta degi ársins.

Read the full article at Morgunblaðið / mbl.is

2 reports

Morgunblaðið / mbl.isIndependentCenter2 days ago
Responding to dissatisfaction: "It's obviously not out there"

Jakob Frímann Magnússon, organizer of the event, states it is natural for stricter rules to apply at the Þingvellir National Park compared to those at Kaleo's concert in Vaglaskóli last year. The event at Bergmál in the middle of the Þingvellir National Park has nearly sold out, with an expected attendance of around 20,000 people despite complaints about strict rules and high ticket prices. Rules were introduced due to reports from local residents, park supervisors, and catering staff in the area. It was stated from the beginning that this would not be an 'outdoor' or festival-style event. On

Bias read (Center): The article discusses cultural events and their organization without taking a political stance. It presents facts about event management, public reactions, and logistical details without biased language or framing.

Morgunblaðið / mbl.isIndependentCenter2 days ago
Why are people selling their chickens?

The article discusses public dissatisfaction with the rules at a concert by singer Jökull Júlíusson (of Kaleo) held at Þingvöllur over the weekend. Attendees expressed frustration over restrictions such as not being allowed to bring food or drinks, which was implemented due to safety concerns requested by the police. Some critics called these regulations 'fascist' and argued they were stifling traditional festival atmosphere. The event was broadcast live on Símatvíðbandið, and some attendees felt the rules were overly strict.

Bias read (Center): The article presents public reactions and complaints without taking a clear stance or using biased language. It reports on audience frustrations with event rules but does not favor any particular viewpoint or ideology.