ON
← Back to feed
ISCulture6 days ago

24 Jump Street on the way

The production of the movie '24 Jump Street' has begun, with Channing Tatum, Jonah Hill, and Ice Cube involved in discussions about returning to the franchise. The film is a continuation of the popular '21 Jump Street' and '22 Jump Street.' Variety reported on the news last week. Rodney Rothman, who directed 'Spider-Man: Into the Spider-Verse,' will direct this film and co-wrote the script with Jonah Hill and Meghan Malloy. The duo Lord and Miller, who directed the first two films, have returned as producers alongside Neal H. Mortiz. Mortiz posted an image of the script for '24 Jump Street' on

Framleiðsla er hafin á gamanmyndinni 24 Jump Street og eru Hollywood-stjörnurnar Channing Tatum, Jonah Hill og Ice Cube í viðræðum um að snúa aftur í seríuna. Myndin er framhald hinna vinsælu 21 Jump Street og 22 Jump Street.

Bransamiðillinn Variety greindi frá fregnunum í lok síðustu viku.

Þar kemur fram að Rodney Rothman, sem leikstýrði  Spider-Man: Into the Spider-Verse (2018), muni leikstýra myndinni en hann skrifaði einnig handritið með Jonah Hill og Meghan Malloy. Tvíeykið Lord og Miller, sem leikstýrðu fyrstu tveimur myndunum, snúa aftur sem framleiðendur ásamt Neal H. Mortiz.

Sá síðastnefndi birti mynd af handriti 24 Jump Street á Instagram en framan á því stendur: „Það tók svo langan tíma að gera hana að við hoppuðum yfir eina.“

Fyrsta myndin, 21 Jump Street (2012), var endurgerð á samnefndum sjónvarpsþáttum frá níunda áratugnum og fjallaði um þá Schmidt (Hill) og Jenko (Tatum), tvær löggur sem þykjast vera menntaskólanemar til að afhjúpa glæpahring. Myndin sló í gegn, halaði inn 200 milljónum dala í miðasölu og gat af sér framhaldið 22 Jump Street (2014) þar sem þeir félaga endurtaka leikinn í háskóla.

Þriðja myndin hefur legið fyrir hjá Sony í meira en áratug og lýsti Tatum handriti hinnar ókláruðu 23 Jump Street sem besta handriti þriðju myndar sem hann hefði nokkurn tímann lesið. Ekkert varð þó úr henni og enduðu aðstandendur á að skrifa nýtt handrit. Glöggir lesendur taka eftir því að titill nýju myndarinnar hoppar yfir 23 Jump Street í næsta númer fyrir ofan.

Vafalaust er þar um að ræða einhvern sjálfsvísandi húmor en í lok annarrar myndarinnar þá var grínast með möguleg framhöld þar sem félagarnir tveir fara í leyni í læknanám, skiptinám, listnám og ýmislegt annað.

Ekki liggur þó enn fyrir hvað þeir munu nákvæmlega gera í nýju myndinni. Hill er búinn að samþykkja að snúa aftur og hefjast viðræður við Tatum á næstunni.

Read the full article at Vísir

1 reports

VísirIndependentCenter6 days ago
24 Jump Street on the way

The production of the movie '24 Jump Street' has begun, with Channing Tatum, Jonah Hill, and Ice Cube involved in discussions about returning to the franchise. The film is a continuation of the popular '21 Jump Street' and '22 Jump Street.' Variety reported on the news last week. Rodney Rothman, who directed 'Spider-Man: Into the Spider-Verse,' will direct this film and co-wrote the script with Jonah Hill and Meghan Malloy. The duo Lord and Miller, who directed the first two films, have returned as producers alongside Neal H. Mortiz. Mortiz posted an image of the script for '24 Jump Street' on

Bias read (Center): The article discusses the production of a movie and provides factual information about the cast, director, and production details without any political commentary or bias.